PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Fréttir

Danskir brjóstdropar í sauðburðinn

Danskir brjóstdropar hafa löngum verið kærkominn vinur í kveftíð landsmanna og kannast flestir við ágæti þeirra við leiðinda hósta. Það sem kannski færri vita er að Danskir brjóstdropar koma að mjög góðum notum í sauðburð þegar hressa þarf við lömb sem koma líflítil í heiminn. Á bæ einum í Vatnsdal eru Danskir brjóstdropar eitt af því sem alltaf er til þegar sauðburður byrjar og að sögn bóndans hefur mixtúran bjargað lífi margra lamba.
Þegar líflítið lamb kemur í heiminn t.d. eftir erfiðan burð er putta dýft í mixtúruna og henni síðan makað inn í munninn á lambinu og eins langt niður í kok og hægt er. Þetta rífur vel í og fær lömbin til að losa sig við slím sem situr í þeim. Í góðu lagi er að gefa lömbunum nokkra svona "fingurslurka" þar til þau eru farin að halda haus.



APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn