Heilsa, húð og hár
þriðjudagur 07. september 2010
Pharmarctica tekur þátt í sýningunni Heilsa, húð og hár sem fer fram í Vetrargarðinum í Smáralindinni dagana 11-12 september. Á sýningunni verða vörur og starfsemi fyrirtækisins kynnt.
Á sunnudeginum 12 september kl. 15-15:30 mun Þórunn Lúthersdóttir, framleiðslustjóri fyrirtækisins halda stuttan fyrirlestur um starfsemi og vörur.
Við hvetjum fólk til að fjölmenna á sýninguna og kynna sér það sem við höfum upp á að bjóða, fá svör við spurningum og prufa vörurnar okkar.
