PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Andlitskrem

Án allra ilm- og litarefna!

Andlitskrem er flauelsmjúkt krem sem hægt er að nota sem bæði dag- og næturkrem. Kremið hentar þó síður sem dagkrem fyrir þá sem eru með feita húð. Kremið inniheldur mikið af næringarríkum olíum sem innihalda m.a. A, D og E-vítamín. Í kreminu er einnig efni sem veitir væga vörn gegn UVA og UVB geislum sólarinnar. Kremið er þó alls ekki ætlað sem sólvörn eitt og sér.

Geymsla: Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Rosa centifolia water, cocos nucifera oil, prunus amygdalus dulcis oil, cetearyl alcohol, cetyl alcohol, bis-ethylhexyloxyphenol methoxyphenyl triazine, triticum vulgare germ oil, simmondsia chinensis seed oil, ethyl morrhuate, carbomerum og sodium hydroxide
Innihald: Rósavatn (vatn, rotvörn og rósaolía), lífræn kókosolía, möndluolía, cetylanum, cetanól, tinosorb, hveitikímolía, jojobaolía, þorskalýsi, carbomerum og natríum hydroxíð.

Umbúðastærðir: 50 ml túpa
Vörunúmer: 12000185

APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.










APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn