Án allra ilm- og litarefna!
Barnakrem er feitt, millistíft krem með 3% karbamíð fyrir þurra og viðkvæma barnshúð. Þetta krem má nota á allan líkamann, líka í andlit. Barnakrem hefur verið að reynast mjög vel á exemlíka húð þar sem það bæði gefur raka og bindur rakann í húðinni.
Geymsla: Geymist við stofuhita eða í svala. Of mikill kuldi gerir kremið mjög stíft.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað
Innihald (INCI): Aqua, olea europaea oil, eucerinum, urea og methylparaben.
Innihald: Vatn, ólífuolía, eucerinum, karbamíð og rotvörn.
Umbúðastærð: 100 ml túpa
Vörunúmer (100 ml): 12000082
APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.
