PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Barnapúður

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Barnapúður er hreint talkúmpúður. Púðrið má nota víðsvegar um líkamann á svæði þar sem þurrka þarf húðina. Sem dæmi má nefna;  í húðfellingum t.d. á hálsi eða kvið,  í handarkrikum, á milli táa, í hnésbótum, á bleyjusvæðinu  og undir brjóstum. Gott er að nota barnapúður í samspili við aðrar vörur eins og t.d. Bossakrem, Zinkpasta eða Barnakrem.

Notkunarleiðbeiningar: 
Dreifið góðu magni af Barnapúðri yfir svæðið sem á að þurrka. Passið að lyfta vel upp öllum húðfellingum þannig að allt raka svæðið sé púðrað. Þegar húðin hefur verið þurrkuð er gott að bera Bossakrem eða Zinkpasta á svæðið til að verja það og gefa húðinni fitu. Barnapúðrið má nota eins oft og þörf krefur.

Geymsla: Forðist raka.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Talc
Innihald: Talkúm

Umbúðastærð: 100 ml flaska með sprautustút.
Vörunúmer (100 ml): 12000103

Tengdar vörur:  Zinkpasta



APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.





APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn