PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Bliss

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Bliss er sótthreinsandi, græðandi og kælandi lausn til að þurrka upp vessablöðrur á vörum. Bliss er sérstaklega ætlað á frunsur til að flýta fyrir að þær grói. Í Bliss er kamfóra sem er græðandi, tímól sem virkar neikvætt á bakteríur og mentól sem kælir. Nafnið á Bliss er dregið af enska orðinu bliss eða sæla þar sem að lausin veitir kælingu og græðir upp svæðið sem frunsan er á.
Vel hefur gefist að nota Bliss samhliða notkun á frunsuplástrum.

Notkunarleiðbeiningar:
Berið Bliss á svæðið með eyrnapinna um leið og þið finnið fyrir því að frunsan er að láta á sér kræla. Gott er að setja frunsuplástur síðan yfir svæðið. Síðan þegar skipt er um plástur skal bera Bliss á svæðið til að hreinsa það áður en nýr plástur er settur á.

Geymsla: Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Isopropyl alcohol (88,8%), camphor, menthol og thymol
Innihald: Ísóprópanól, kamfóra, mentól og tímól.

Umbúðastærðir: 10 ml flaska með dropastút.
Vörunúmer: 12000075

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn