PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Danskir brjóstdropar

Með lakkrísbragði!
Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Danskir brjóstdropar er kröftug hóstamixtúra sem mýkir hálsinn og stillir þrálátan hósta. Mixtúran er eingöngu ætluð fullorðnum, fyrir börnin bjóðum við uppá Lakkrísdropa. Forveri dönsku brjóstdropanna voru norsku brjóstdroparnir en hætt var að flytja þá inn eftir að eter var bannaður í slíkum mixtúrum. Dönsku brjóstdroparnir eru því eterlausir og góðir.
Danskir brjóstdropar duga við fleiru en hósta því að í sauðburði nota margir bændur þessa mixtúru með góðum árangri á líflítil lömb.

Notkunarleiðbeiningar:
Til inntöku: Hristist vel fyrir notkun. Skammtastærðir fyrir fullorðna eru 5-10 (1-2 tsk) í senn mest 4 sinnum á dag.
Í sauðburð: Þegar líflítið lamb kemur í heiminn t.d. eftir erfiðan burð er putta dýft í mixtúruna og henni síðan makað inn í munninn á lambinu og eins langt niður í kok og hægt er. Þetta rífur vel í og fær lömbin til að losa sig við slím sem situr í þeim. Í góðu lagi er að gefa lömbunum nokkra svona "fingurslurka" þar til þau eru farin að halda haus.

Varúð!
Mixtúran er ekki ætluð börnum.
Mixtúruna skal ekki taka inn á meðgöngu.
Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Neysla vörunnar og akstur fara ekki saman.

Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Aqua, diluendum glycyrrhiaze (416 mg/ml), alcohol (118 mg/ml), ammonium hydroxide 25% (15,4 mg/ml), illicium verum oil (1,77 mg/ml) og foeniculum vulgare oil (0,31 mg/ml)
Innihald: Vatn, lakkrís (vatn, ammoníak, glýserín, spíri og lakkrísduft), spíri, ammoníum hydroxíð, anís og fenníka.

Umbúðastærðir: 100 ml flaska
Vörunúmer (100 ml): 12000149

Tengdar vörur: Lakkrísdropar   

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn