PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Feitt rakakrem

Án allra ilm- og litarefna!

Feitt rakakrem er feitt rakabindandi krem sem hentar fyrir venjulega, þurra húð og mjög þurra húð. Kremið má nota í andlit og á hendur ef húðin er mjög þurr á þessum svæðum. Efnið karbamíð sem er í kreminu bindur raka í húðinni og fituefni gefa húðinni raka og mýkt. Best er að bera kremið á sig fyrir svefn.

Fyrir minna þurra húð bendum við á Kókoskrem

Geymsla: Geymist við stofuhita
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Aqua, paraffinum liquidum, eucerinum, urea, methylparaben, carbomerum og sodium hydroxide.
Innihald: Vatn, paraffínolía, eucerinum, karbamíð, rotvörn, carbomerum og natríum hydroxíð.

Umbúðastærðir: 200 ml túpa
Vörunúmer (200 ml): T00029


A+ heilsuvörur eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn