PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Fyrirtækið

PharmArctica var stofnað um mitt ár 2002 og vinnsla hófst í maí 2003.  Stofnendur voru Torfi Rafn Halldórsson lyfjafræðingur, Jónína Freydís Jóhannesdóttir lyfjafræðingur, Bergþóra Stefánsdóttir hjúkrunarfræðingur  og Sænes. 

Hlutahafar PharmArctica í dag eru Sænes, Sparisjóður Höfðhverfinga og       Jónína Freydís Jóhannesdóttir.
Sjö starfsmenn starfa hjá PharmArctica og þar af eru tveir lyfjafræðingar, einn líffræðingur og einn líftæknir.

PharmArctica er með lyfjaframleiðsluleyfi til að framleiða forskriftarlyf. Fyrirtækið sérhæfir sig í framleiðslu á blautvörum s.s. kremum, mixtúrum, smyrslum, lausnum og áburðum. Árið 2010 hóf fyrirtækið framleiðslu á vítamínum með DC-slætti.

 

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn