PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Glýserín

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Glýserín er olía sem nota má á allan líkamann og í andlit. Olían er notuð á margvíslegan máta t.d.; sem nuddolía, á sprungnar hendur, við þrusku í munni barna,  til að bera á börn, til að setja útí baðvatn, til að mýkja upp skán í hársverði og til að mýkja upp eyrnamerg.

Notkunarleiðbeiningar:

Til að leysa upp eyrnamerg:
leggið höfuðið út á hlið og látið 1-3 dropa renna inní hlustina. Bestur árangur næst ef olían er sett í eyrað að kvöldi til og leyft að virka yfir nóttina. Daginn eftir þarf að þrífa úr ytra eyranum umfram olíu og uppleystan eyrnamerg sem hefur skilað sér út. Varast skal að fara með eyrnapinnann inn í hlustina!!
Til að mýkja upp skán í hársverði: berið olíuna í hársvörðinn og leyfið að bíða í a.m.k. 1 klst. Bestur árangur næst ef olían er borin í hársvörðinn að kvöldi til og leyft að virka yfir nótt. Daginn eftir er hársvörðurinn greiddur með mjúkum bursta eða greiðu þannig að skánin fari. Varast ber að greiða of fast til að særa ekki húðina. Til að viðhalda árangrinum getur þurft að bera olíuna í hársvörðinn reglulega.
Við þrusku (hvítri skán í munni): Dýfið eyrnapinna í olíuna og pennslið munn barnsins að innan með henni. Gott er að ráðfæra sig við fagaðila t.d. ljósmóður, lækni eða starfsmann apóteks um hve oft og í hvað langan tíma þetta skuli vera gert.
Á sprungnar hendur: Áður en farið er að sofa er gott að bleyta hendurnar aðeins, setja nokkra dropa af glýseríni á þær og nudda inní húðina. Endurtakið í 3-5 nætur. Ef hendurnar eru mjög illa sprungnar þá er gott að vefja þær inní léreft eftir að olían hefur verið borin á og hafa þær vafðar yfir nóttina.

Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Glycerin
Innihald: Glýseról

Umbúðastærð: 100 ml flaska með spraututappa
Vörunúmer (100 ml): 12000040

APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.





APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn