PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Hreinsað bensín

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Hreinsað bensín er leysiefni sem er ætlað til tæknilegra nota. Hreinsað bensín hentar til að losa límleifar af vissum efnum, sem blettahreinsir, sem pennslahreinsir og sem forhreinsari á skóm og leðri. Hægt er að fjarlæga margar gerðir af fitublettum, harpix, varalit, límmiða og tyggjó af yfirborði efna sem þola hreinsað bensín.

Notkunarleiðbeiningar:

Hreinsað bensín getur eyðilagt viss efni. Ávallt skal prufa að setja bensínið á lítið áberandi blett á efninu áður en notkun hefst!

 Sem blettahreinsir: Notið lítið magn af hreinsuðu bensíni í einu og nuddið þar til bletturinn er þurr. Gott er að leggja rakan klút undir svo ekki smitist í gegn. Þegar hreinsa á rússkinn þá er hreinsað bensín blandað saman við kartöflumjöl og sett á blettinn. Síðan þegar mjölið er þornað þá er það ryksugað í burtu.
Sem pennslahreinsir: Notist til  hreinsunar á pennslum sem hafa t.d. verið notaðir í Fernisolíu.
Sem forhreinsari á skófatnað og leður (fyrir litun): Vætið klút með hreinsuðu bensíni og þurrkið af.

Varúð!
Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Mjög eldfimt.
Ertir húð.
Mjög eitrað vatnalífverum, getur haft skaðleg langtímaáhrif á lífríki í vatni.
Innöndun gufu getur valið svima og sljóleika.
Haldið frá hita- og neistagjöfum.
Reykingar bannaðar.
Gerið varúðarráðstafanir gegn stöðurafmagni.
Getur valdið lungnaskaða við inntöku.
Varist að framkalla uppköst eftir inntöku.
Leitið umsvifalaust læknis og sýnið umbúðir eða umbúðamerkingar.

Geymsla: Geymist á vel loftræstum stað fjarri hita- og neistagjöfum.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): SPB 100/140
Innihald: Hreinsað bensín 100/140

Umbúðastærðir: 100 ml flaska með sprautustút
Vörunúmer (100 ml): 2000068

Nánari upplýsingar: Öryggisblað (MSDS) 


APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn