PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Húðnæring

Án allra ilm- og litarefna!

Húðnæring er sérstaklega ætluð á mjög þurra húð á líkama en einnig má bera það í andlit og á hendur. Húðnæring inniheldur mikið magn af jarðhnetuolíu og telst því mjög feitt krem.

Kremið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru með viðkvæma húð vegna þess að mjög auðvelt er að bera það á húðina. Kremið hefur reynst vel fyrir fólk sem þjáist af exem og psoriasis.

Kremið er þunnfljótandi og þarf að hrista vel fyrir notkun.


Geymsla: Má ekki frjósa, haldist frá beinu sólarljósi og miklum hita. Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Jarðhnetuolía.

Innihald (INCI): Oleum arachitis oil, eucerinum, aqua og methylparaben.
Innihald: Jarðhnetuolía, eucerinum, vatn og rotvörn.

Umbúðastærðir: 100 ml túpa

Vörunúmer (100 ml): T00001

A+ heilsuvörur eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.










APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn