Án allra ilm- og litarefna!
Hydroderm tar er milt tjörukrem ætlað til daglegrar notkunar á exem og psoriasis.
Kremið hefur mýkjandi og græðandi áhrif á þurra húð. Hægt er að nota kremið í hársvörð og er þá
best að bera það í að kvöldi til að leyfa að vera yfir nótt.
Notkunarleiðbeiningar:
Í hársvörð: Kremið er borið í hársvörðinn og látið bíða þangað til skánin/húðin hefur
mýkst upp. Þá er kremið þvegið úr með vatni og sápu.
Í mjög erfiðum tilfellum er best að setja kremið í hársvörðinn fyrir svefn, hægt er setja poka yfir hárið til þess að
varna því að kremið smitist í rúmfötin. Daginn eftir er kremið síðan þvegið úr hárinu með vatni og sápu.
Geymsla: Geymist við stofuhita
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað
Innihald (INCI):
Virk innihaldsefni: Liquor carbonis detergens (47,4 mg/g), urea (66,4 mg/ml).
Önnur innihaldsefni: Aqua, arachis hypogaea oil, petrolatum, cetearyl alcohol, paraffinum liquidum, ethyl morrhuate og methylparaben
Innihald:
Virk innihaldsefni: Tjara og karbamíð
Önnur innihaldsefni: Vatn, jarðhnetuolía, vaselín, cetylanum, paraffínolía, þorskalýsi og rotvörn.
Umbúðastærðir: 100 ml túpa með breiðum stút
Vörunúmer (100 ml): 12000169
