Mildur ferskjuilmur!
Án allra litarefna!
Kornakrem með jojobaperlum er mildur andlitsskrúbbur sem fjarlægir dauðar og þurrar húðfrumur. Kremið styrkir húðina, dregur
úr pirring og gefur henni mýkt og raka. Jojobaperlurnar fjarlægja dauðar húðfrumur á mildan máta og hvorki særa né rispa
húðina í ferlinu. Í kreminu er meðal annars apríkósukjarnaolía sem inniheldur fitusýrur, A- og E-vítamín,
línólsýru og önnur næringarefni. Ferskjuolía er notuð til að gefa kreminu mildan ferskjuilm.
Kornakremið er sérstaklega hannað fyrir andlit en auðvitað má nota það á allan líkamann. Eftir að búið er að
fjarlægja líkamshár með rakstri, háreyðingu eða vaxi er gott að nudda kreminu létt yfir rakt svæðið í t.d. sturtu til
að minnka líkurnar á inngrónum hárum.
Notkunarleiðbeiningar:
Best er að nota skrúbbinn í sturtu eða baði. Nuddið skrúbbnum létt í hringi
á raka húðina og skolið síðan af. Notist ekki á húðina í kringum augun.
Geymsla: Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.
Innihald (INCI): Rosa centifolia water, cocos nucifera oil, prunus amygdalus dulcis oil, jojoba esters, prunus armeniaca kernel oil, cetearyl alcohol, cetyl alcohol,
carbomerum, sodium hydroxide og prunus persica oil.
Innihald: Rósavatn (vatn, rotvörn og rósaolía), lífræn kókosolía, möndluolía, jojobaperlur, lífræn
apríkósukjarnaolía, cetylanum, cetanól, carbomerum, natríum hýdroxíð og ferskjuolía.
Umbúðastærð: 100 ml túpa
Vörunúmer: 12000186
APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.
