PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Kornakrem fyrir líkamann

Mildur ferskjuilmur!
Án litarefna!

Kornakrem fyrir líkamann er líkamsskrúbbur með jojobaperlum sem fjarlægir dauðar og þurrar húðfrumur á áhrifaríkann hátt. Kremið styrkir húðina, dregur úr pirring og gefur henni mýkt og raka. Jojobaperlurnar fjarlægja dauðar húðfrumur á mildan máta og hvorki særa né rispa húðina í ferlinu.  Í kreminu er meðal annars apríkósukjarnaolía sem inniheldur fitusýrur, A- og E-vítamín, línólsýru og önnur næringarefni. Ferskjuolía er notuð til að gefa kreminu mildan ferskjuilm. 
Kornakremið er sérstaklega hannað fyrir líkama og því er ekki æskilegt að nota kremið á andlitið eða hálsinn en auðvitað má nota það á allan líkamann. Eftir að búið er að fjarlægja líkamshár með rakstri, háreyðingu eða vaxi er gott að nudda kreminu létt yfir rakt svæðið í t.d. sturtu til að minnka líkurnar á inngrónum hárum.

Notkunarleiðbeiningar:
Best er að nota skrúbbinn í sturtu eða baði. Nuddið skrúbbnum létt í hringi á raka húðina og skolið síðan af. Notist ekki á andlit og háls.

Geymsla: Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Rosa centifolia water, cocos nucifera oil, jojoba esters, prunus amygdalus dulcis oil, prunus armeniaca kernel oil, cetearyl alcohol, cetyl alcohol, carbomerum, sodium hydroxide og prunus persica oil.
Innihald: Rósavatn (vatn, rotvörn og rósaolía), lífræn kókosolía, jojobaperlur, möndluolía, lífræn apríkósukjarnaolía, cetylanum, cetanól, carbomerum, natríum hýdroxíð og ferskjuolía.

Umbúðastærð: 200 ml túpa
Vörunúmer (200 ml): 12000111

APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn