PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Lakkrísdropar

Með lakkrís- og piparmyntubragði!
Án allra ilm- og litarefna!

Lakkrísdropar er mýkjandi og hóstastillandi mixtúra ætluð bæði fyrir börn og fullorðna. Mixtúran slær vel á þrálátan hósta og minnkar pirring/kitltilfinningu í hálsi. Börn mega taka inn þessa mixtúru undir eftirliti fullorðinna.

Notkunarleiðbeiningar:
Til inntöku: Hristist vel fyrir notkun. Börn skulu aðeins taka inn  mixtúruna undir eftirliti fullorðinna. Skammtastærðir fyrir fullorðna eru 10 ml (2 tsk) í senn mest 4 sinnum á dag. Skammtastærðir fyrir börn 4-12 ára er 5 ml (1 tsk) í senn mest 4 sinnum á dag. Skammtastærðir fyrir börn 1-4 ára er 2,5 ml (1/2 tsk) í senn mest 4 sinnum á dag.

Varúð!
Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Geymsla: Geymist við stofuhita eða kæli fyrir opnun. Geymist í kæli eftir opnun.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Aqua, diluendum glycyrrhiaze (164 mg/ml), ammonium chloride (7,3 mg/ml), ammonium hydroxide 25% (2,1 mg/ml), peppermint flavour, alcohol (0,5 mg/ml), methylparaben og eucalyptus globulus oil (0,1 mg/ml). 
Innihald: Vatn, lakkrís (vatn, ammoníak, glýserín, spíri og lakkrísduft), ammoníum klóríð, ammoníum hydroxíð, piparmyntubragðefni, spíri, rotvörn og eukalyptusolía

Umbúðastærðir: 100 ml flaska
Vörunúmer (100 ml): 12000166

Tengdar vörur: Danskir brjóstdropar  

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn