Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!
Methylrósanilin 1% er sótthreinsandi og sveppadrepandi lausn. Lausnin er aðallega notuð á munnangur, á þrusku í munni barna og
á sveppasýkingu í geirvörtum kvenna með barn á brjósti.
Leitið ráðgjafar fagaðila svo sem ljósmóður, læknis eða lyfjafræðings áður en varan er tekin í notkun.
Notkunarleiðbeiningar:
Við munnangri: Pennslið lausninni á svæðið með eyrnapinna.
Við þrusku í munni: Ef barnið er á brjósti og móðirin notar lausnina á geirvörturnar fær barnið lausnina í
munninn við brjóstagjöfina og ekki ætti að vera þörf á því að pennsla munn þess sérstaklega. Ef barnið er ekki á
brjósti eða móðirin er ekki að bera á sig lausnina þá skal pennsla munn barnsins og tungu varlega með eyrnapinna vættum í lausninni.
Misjafnt er hvað ráðlagt er að gera þetta í langan tíma eða hve oft og því skal ávallt hafa fyrirmæli frá fagaðila
áður en varan er notuð.
Á geirvörtur: Setjið lausnina á eyrnapinna og pennslið geirvörtuna og útá brúna/bleika svæðið í kring
varlega með lausninni. Misjafnt er hvað ráðlagt er að gera þetta í langan tíma eða hve oft og því skal ávallt hafa
fyrirmæli frá fagaðila áður en varan er notuð.
Geymsla: Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.
Innihald (INCI): Aqua og methyl violet
Innihald: Vatn og methylrósanilin
Umbúðastærðir: 10 ml flaska með dropastút.
Vörunúmer: 12000023
