PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Mömmukrem

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Mömmukrem er sérhannað krem fyrir mæður með barn á brjósti. Ekki þarf að þrífa kremið af áður en barnið er lagt á brjóstið, en það er mjög góður eiginleiki þar sem sífelldur þvottur eykur á þurrkinn í húðinni. Mömmukrem má  nota sem rakakrem á geirvörtur á meðgöngu til að fyrirbyggja þurrk sem gæti valdið vandamálum seinna þegar kemur að brjóstagjöf.

Mömmukrem hefur fleiri notkunarmöguleika en kremið er mikið notað á svæsna þurrkubletti á húð um allan líkamann og í andliti. Einnig þykir kremið græðandi og húðverndandi á t.d. sár og bleyjubruna.

Mömmukrem er mjög feitt og fremur þunnfljótandi og því þarf aðeins örlítið magn af því hvert skipti sem það er notað.

Notkunarleiðbeiningar:
Þerrið varlega munnvatn af geirvörtunni og berið kremið á í mjög þunnu lagi eftir hverja brjóstagjöf. Ekki þarf að þrífa afgangskrem af þegar kemur að næstu brjóstagjöf.

Geymsla: Geymist við stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Lanolin.

Innihald (INCI): Lanolin, cocos nucifera oil og olea europaea oil
Innihald: Ullarfeiti, lífræn kókosolía og ólífuolía

Umbúðastærð: 50 ml túpa
Vörunúmer (50 ml): 12000182


APÓTEK vörurnar eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.





APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn