PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Sorbitól

Án allra ilm-, litar- og rotvarnarefna!

Sorbitól mýkir upp hægðir og heldur þeim mjúkum. Mixtúran er notuð við þrálátri hægðatregðu hjá börnum og fullorðnum. Sorbitól má taka inn í langan tíma. Leita skal ráðgjafar fagaðila svo sem læknis eða lyfjafræðings áður en varan er tekin í notkun.

Notkunarleiðbeiningar:
Ráðlagður dagsskammtur fyrir fullorðna er 10-15 ml (1 msk) og fyrir börn 5 ml (1 tsk). Skammtastærðir geta verið breytilegar eftir ráðleggingum læknis og ávallt skal fylgja þeim leiðbeiningum.

Varúð!
Of stór skammtur getur valdið niðurgangi.

Geymsla: Geymist við stofuhita eða í kæli.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Sorbitol
Innihald: Sorbitól

Umbúðastærðir: 100 ml og 500 ml flaska.
Vörunúmer (100 ml): 12000009 
Vörunúmer (500 ml): 953217

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn