PharmArctica

PharmArctica er íslenskur lyfjaframleiðandi sem framleiðir lyf, snyrtivörur (krem, olíur, varasalva) og vítamín undir ströngustu gæðakröfum.

Útivistarkrem

Mildur ilmur af lavender og rósmarín!
Án allra tilbúinna ilm- og litarefna!


Útivistarkrem er hannað með útivist í huga. Kremið er ætlað fyrir börn og fullorðna sem eru í útiveru hvort heldur sem er í leik eða starfi. Útivistarkrem verndar húðina fyrir frostbiti, vindþurrk og vetrarsól. Kremið er borið á andlit áður en farið er út.
Af kreminu er mildur lavender og rósmarín ilmur sem að fæst úr lavenderolíu og rósmarínolíu sem virka bæði húðverndandi og verjandi ásamt því að gefa góða lykt.
Útivistarkrem er einnig mikið notað sem hreinsikrem til að fjarlægja farða og sem öflugt rakakrem fyrir þurra húð. Kremið virkar einnig vel á þurrkubletti og harða húð á iljum og olnbogum.
Útivistarkremið inniheldur 24, 69% vatn.   


Geymsla:
Geymist í stofuhita.
Ofnæmisvaldar: Ekki vitað.

Innihald (INCI): Arachis hypogaea oil, aqua (24,69%), cetyl palmitate, cera alba, eucerinum, methylparaben, lavandula angustifolia oil og rosmarinus officinalis oil.
Innihald: Jarðhnetuolía, vatn, cetyl palmítas, bývax, eucerinum, rotvörn, lavenderolía og rósmarínolía.

Umbúðastæðir: 50 ml krukka
Vörunúmer (50 ml): T00006

A+ heilsuvörur eru alhliða vörur sem framleiddar eru undir ströngustu gæðakröfum af íslenska lyfjafyrirtækinu PharmArctica.

APÓTEK

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn