Pharmarctica hefur tekið að sér í verktakavinnu framleiðslu, áfyllingu og pökkun á vörum. Pharmarctica sem er ört stækkandi fyrirtæki er sífellt í leit að nýjum áhugaverðum viðfangsefnum. Við bjóðum upp á góða þjónustu og ábyrgjumst fagleg vinnubrögð.
Fyrirtækið framleiðir og pakkar rakakremi og body lotion fyrir Jarðböðin í Mývatnssveit.

Fyrirtækið framleiðir, pakkar, merkir og vinnur að vöruþróun með SDS.

Fyrirtækið sér um framleiðslu, pökkun og merkingar á vitamínum undir vörumerkjum Biomega og Ein á dag fyrir Icepharma.
Fyrirtækið framleiðir og sér um pökkun og merkingar á Bio Ice kremum í samstarfi við Sigríði Einarsdóttur. Bio Ice eru náttúruleg krem með græðandi eiginleikum.

Fyrirtækið sér um blöndun og áfyllingu á ilmvötnunum ELLA DAY og ELLA NIGHT og heimailmunum PASSION og HOLIDAY í samstarfi við fyrirtækið ELLA


Fyrirtækið sér um pökkun, merkingar og framleiðslu að hluta á vítamínlínu fyrirtækisins IceCare

Fyrirtækið sér um blöndun og áfyllingu á EGF húðnæringu, BIO Effect body serum og BIO Effect EGF Serum fyrir SIF Cosmetics

Fyrirtækið sér um blöndun, áfyllingu og pökkun á vörunum Sóley organic

