Vítamínmarkaður á Íslandi er stór miðað við höfðatölu þjóðarinnar. Hingað til hafa flestöll vítamín sem seld eru á landinu verið framleidd úti og síðan flutt hingað til landins tilbúin eða pökkuð hérna heima. Því er Pharmarctica stolt af því að vera í dag eina fyrirtækið á landinu sem að framleiðir vítamín frá grunni og pakkar þeim.
Í byrjun árs 2010 að lokinni margra mánaða þróunarvinnu hóf Pharmarctica framleiðslu á vítamínum með DC-slætti. Framleiðslan fylgir sama gæðakerfi og er viðhaft í snyrtivöru - og lyfjaframleiðslu fyrirtækisins en stöðlum GMP er fylgt.
Margir kostir fylgja því að láta framleiða vítamínin hér á landi en má þar nefna að slíkt er auðvitað atvinnuskapandi og vörurnar sem boðið er upp á eru nýjar. Þannig njóta bragðefni í t.d. tuggutöflum sín mun betur sem kemur fram í ferskari og bragðmeiri töflum.
