Dagkrem

Dagkrem er rakagefandi krem (e.moisturizer) sem inniheldur sodium PCA, efni sem er hluti af heilbrigðri húð, sodium PCA vinnur við að binda raka við húðfrumurnar sem stuðlar að sléttu yfirborði húðar og heilbrigðum ljóma. Möndluolía  og jojobaolía gefa raka, næringu og mýkt í húðina. Olíurnar eru valdar þannig saman að önnur gengur hratt inn í húðina og nærir innan frá en hin dvelur lengur á yfirborðinu og gefur húðinni vörn utan frá. Sugar cane squalane er efni sem er líka hluti af heilbrigðri húð og það hindrar rakatap úr húðinni ásamt því að auka teygjanleika húðarinnar. Þessi fjögur aðalinnihaldsefni vörunnar ásamt því samspili sem hin innihaldsefnin gefa er það sem býr til þetta góða dagkrem sem hentar langflestum húðgerðum.
Mildur ilmur af sítrónuolíu ýtir undir ferskleika tilfinningu við notkun á kreminu. 

Öll okkar krem eru án parabena og litarefna, þau eru ekki prófuð á dýrum og framleidd í GMP vottuðu húsnæði. 

Geymsla: Geymist við stofuhita.

Yfir 90% af innihaldi vörunnar er af náttúrulegum uppruna.

Innihald (INCI): Aqua (icelandic springwater), Prunus amygdalus dulcis (almond) oil, Simmondsia chinensis (jojoba) seed oil, Glycerin (vegetable), Propanediol, Cetearyl alcohol, Squalane (vegetable), Sodium PCA, Sorbitan oleate, Helianthus annuus (sunflower) seed oil, Tocopherol, Citrus limon fruit (lemon) oil,  Xanthan gum, Sodium cetearyl sulfate, Carbomer, Xylityl sesquicaprylate, Caprylyl glycol, Sodium hydroxide, Disodium phosphate, Potassium phosphate, Limonene*, Citral*, Geraniol*.

*Mögulegir ofnæmisvaldar sem eru partur af náttúrulegri samsetningu ilmkjarnaolía 

Umbúðastærðir: 50 ml airless pumpa
Vörunúmer: 12000185