Opið hús

Föstudaginn 23. maí  á milli klukkan 17-19, ætlum við að hafa opið hús í Pharmarctica að Lundsbraut 2. Gestum verður boðið upp á að skoða nýja lagerhúsnæðið okkar og farið verður með hópa í gegnum framleiðslusvæðið undir leiðsögn. Boðið verður upp á léttar veitingar. Við hvetjum sem flesta til að koma og kynna sér starfsemi fyrirtækisins og eiga með okkur ánægjulega stund.